Blogg ??

You will never walk alone

19.07.2007 23:21:36 / mga1

Breytingar

jæja smá breytingar

... ákvað að færa mig yfir á http://www.123.is/magneag/

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.07.2007 22:39:44 / mga1

Hvað er að frétta?

Kannski komin tími á nýja færslu:)  Vil byrja á því að óska Sigurbjörgu til hamingju með afmælið á fimmtudaginn *STÓRT KNÚS*, og svo auðvitað okkur Ingvari með brúðkaupsafmælið :)  Komin fjögur ár :)

Við erum búin að koma okkur ágætlega fyrir í litlu sætu íbúðinni okkar .. allt að verða voða fínt hjá okkur.  Var nú reyndar alveg að klepra á því um síðustu helgi .. fannst ekkert ganga að taka upp úr kössunum .. var mikið að pæla í því að hringja í "Í allt í drasli" gengið og fá það til að koma ;)

En það er nú meira vesenið á henni Evu minni..  Skvísan er búin að vera kvefuð meira og minna síðan í vetur :(  Ákvað að fara með hana til læknis á föstudaginn því við vorum búin með astma pústið og svo fannst mér hún eitthvað svo ólík sjálfri sér (samt alveg hitalaus).  Eftir læknisheimsóknina kom í ljós að hún er með bullandi eyrnabólgu og lungnabólgu :(  litla skinnið mitt.  Þannig að nú er hún komin á sterkan sýklalyfjakúr næstu 2 vikurnar (og niðurgangurinn strax byrjaður .. ömurlegt hvernig þessi lyf fara í maga .. en ég passa mig samt á að vera dugleg að gefa henni ab mjólk).

Nú eru skvísurnar í sumarfríi .. byrja ekki aftur fyrr en um mánaðarmótin.  Ég þarf að vinna á daginn þannig að Ingvar er heimavinnandi húsfaðir á daginn og vinnur svo á kvöldin ... við hittumst í dyrunum við vaktaskiptin hehe

Allt gengur súper vel í vinnunni.  Setti link inn á heimasíðu Matís hér til hliðar ... mæli með því að skoða ÍSGEM gagnagrunninn þar (er reyndar enn í vinnslu . . mikið komið samt).   Þetta er semsagt gagnagrunnur um efnainnihald matvæla ... fínt fyrir þá sem vilja vita hvað þeir eru að setja ofan í sig :)

Jæja ætla að fara að halda áfram að læra í Lífrænni efnafræði 2  .. er nefnilega að fara í sumarpróf .. ég frestaði nefnilega þessu þar sem hafði engan veginn tíma fyrir það í vor (vona bara að ég nái svo ég geti nú útskrifast um jólin *krossa fingur*)

adios

p.s. vitið þið hvenær karlmaður er virkilega farinn að spá í framtíðina ???.......

............ já þegar hann kaupir tvo kassa af bjór hahahaha


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 23:09:12 / mga1

Búin að skrifa undir !!

Já nú er maður búinn að skuldsetja sig upp í haus :S  Skrifuðum loksins undir í dag .. enda fáum við afhent á sunnudaginn :):)  Hlakka mikið til.  Þannig að næstu dagar fara í það að pakka og mála og gera fínt í nýju íbúðinni okkar :)

Annars er alveg brjálað að gera í vinnunni.  Fór í vikunni í aðra vinnuferð austur ... og gékk allt ljómandi vel.  Fyndið hvað allt er mikið leyndarmál í vinnunni... má víst ekki tala um rannsóknirnar mínar við neinn utan fyrirtækisins fyrr en allt er búið :S

Núna man ég ekki hvað ég ætlaði að skrifa meira um .. þannig að þangað til heilinn kemst í samband bið ég bara að heilsa.

adios

p.s. smá brandari í lokinn:  Hvað er það sem er ólíkt með karlmönnum og E.T ?

 

..... E.T hringdi heim


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 22:09:23 / mga1

Gleðilega hátíð !

Þetta er búinn að vera fínn dagur :)  Fórum reyndar ekki í skrúðgöngu (leti í mömmunni hehe) en fórum á Víðstaðatún að kíkja á liðið.  Erla Ósk skemmti sér konunglega í leiktækjunum (þótt foreldrunum þótti ekki ýkja gaman að hanga í biðröð hehe) og Eva María rölti um og skoði liðið.  Byrjuðum á því að fara í bollana .. hélt nú að skvísan hefði ekki hjarta í það en hún heimtaði að fara fyrst í það.  Það gékk bara ljómandi þangað til ferðin var svona hálfnuð þá sagði skvísan (eftir að hafa reynt að halda höfðinu stöðugu) "mamma láttu þetta hætta, mér er illt í maganum".  En við lifðum ferðina af og var skvísan alveg til í að fara aðra ferð :) (en mömmunni fannst það ekki ráðlagt).  Eftir bunu í hoppukastalanum og eftir að hafa kíkt á Abbababb þá var farið í ömmuhús og fengið sér gómsætar vöfflur með rjóma namminamm :)  Verst var að við gleymdum auðvitað að taka með okkur myndavél :(

Annars er nóg búið að vera að gera í afmælisstússi.  Héldum upp á afmælið hennar Erlu síðasta sunnudag .. það sem hún var búin að bíða lengi eftir þessum degi :)  Hún skemmti sér konunglega enda sagði hún um kvöldið "mamma, það var svo rosalega gaman í dag" :)

Svo átti ég víst afmæli líka í vikunni (takk fyrir allar kveðjurnar hehe).  Við Ingvar gerðum okkur dagamun og fórum út að borða í hádeginu á Þrjá frakka ... mjög góður staður, varð sko ekki fyrir vonbrigðum :)

Eru þið búin að sjá eitthvað af þessu "Britain´s got talent"?  Lenti inn á þessum og fékk sko gæsahúð: http://kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=&id=3575

og þessi líka: http://www.youtube.com/watch?v=CC-lKhr1k0g .... svo sæt :)

Jæja hef þetta ekki lengra í bili

adios


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 21:56:31 / mga1

Blessuð ;)

Góða kvöldið.  Vil byrja á því að óska Ínu, Sindra og Jón Inga innilega til hamingju með prinsessuna :)

Jæja þá er ég búin að fara í vinnuferð austur.  Fór á miðvikudaginn og kom aftur á fimmtudagskvöldið ... það var frekar skrítið að vera svona í burtu frá skvísunum mínum, ég meina ég hef aldrei verið heila nótt í burtu frá þeim :S ....  en ég var í góðu yfirlæti hjá Ragnhildi.. takk kærlega fyrir mig :)

Nú styttist í að við fáum afhent .. get varla beðið ... er búin að skipuleggja liggur við hvernig allt á að vera :)

Annars er allt gott að frétta af liðinu.  Prinsessurnar mínar hressar (7,9,13).  Eva María er að komast upp á skaftið og lætur engan valta yfir sig hehe ... hún hjólar bara í systur sína ef Erla Ósk er eitthvað að stríða henni (samt ekkert alvarlegt :)).  Erlu Ósk hlakkar alveg rosalega til að fá litlu systur sína á leikskólan en Eva María byrjar þar strax eftir sumarfrí :)

Svo verður afmæli næsta sunnudag (takið daginn frá), en þá verður stóra skvísan mín 4 ára ... vá ekki nema 2 ár í skóla úff..

Jæja ætla að fara að glápa á kassan

Bið að heilsa að sinni


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.05.2007 18:01:56 / mga1

Hvítasunnudagur

fín helgi að verða búin ... eða nei það er víst einn dagur eftir :)

Tók algjört flipp í hreingerningum í gær og í dag ... var komin með nett ógeð á öllum skítnum.  Reyndar er ekki langt þangað til við flytjum en ég var ekki búin að taka neina almennilega vorhreingerningu vegna prófa og þess háttar. 

Já nú er það 100% .. við flytjum 1. júlí 8)  Hlakka til en samt líka ekki.  Hlakka ekki til að fara að pakka, fara að borga svimandi upphæðir í lán og fara í soldið minna húsnæði ... en á móti kemur að maður er í sínu eigin húsnæði sem er STÓR plús ... ekki þetta óöryggi eins og með leiguhúsnæði.

Mér finnst alveg ótrúlegt að ég er búin að vera í tvær vikur í vinnu ... tíminn er búinn að fljúga gjörsamlega frá mér .. það er svo gaman í vinnunni :)  Svo byrjar smá aksjón í næstu viku en þá fer ég austur á Neskaupstað til þess að renna nokkrum tilraunum í gegn ... það verður bara gaman :)

jæja kveð að sinni

p.s. var að setja inn 2 ný albúm inn á heimasíðuna hjá prinsessunum :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 16:00:01 / mga1

Mér finnst rigningin góð ....

já það er greinilegt að það er komið sumar hehe rigning og alles :S

Búin í prófum og er byrjuð að vinna :) jey Það var ekkert smá mikill léttir að klára prófin og er meira að segja búin að fá út úr tveimur prófum :):) tvær níur (þið verðið að afsaka mig en ég varð aðeins að monta mig). 

Byrjaði í nýju vinnunni á mánudaginn og líkar það bara fínt.  Skrítið að vera ekki að vinna í verslun með brjálaða kúnna yfir hausnum allan daginn ... bara að vinna á mínum hraða ... ráða mér sjálf (svona hérumbil)... bara næs og ekki skemmir fyrir að þetta er mjög skemmtilegt :)

Erum búin að finna okkur íbúð ... en eigum eftir að redda málunum hjá bankanum, hann er með eitthvað smá vesen en vonandi rætist úr því á morgun (annars verð ég bara að leigja gám til að búa í ... nei segji svona trúi ekki öðru en að þetta reddist).  Fundum 3ja herbergja íbúð á Sléttuhrauni ... alveg stórfína ... en kannski svoldið minni en við ætluðum okkur í upphafi.  En maður getur ekki verið vandlátur þegar manni er beinlínis hent út í þetta og á ekki bót fyrir boruna á sér hehe.  En þetta er nú ekki framtíðarhúsnæðið ... ætlum að reyna að vera ýkt dugleg að borga upp viðbótarlánið og fara síðan í stærra :)  ég meina þótt að það sé lítið er alltaf hægt að gera það kósý og láta vel um sig fara :)

jæja ætla að fara að skella í nokkrar vöfflur fyrir okkur skvísurnar ;)

adios


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 12:46:49 / mga1

Allta að gerast ....

Já nú er það komið á hreint ... húsið verður selt :(  Það þýðir að við förum í íbúðarkaup talsvert fyrr en áætlað var.  Húsið fer á sölu 1. júní ... þannig að það er ekki seinna að vænna en að fara að leita sér að íbúð.  Það gæti auðvitað tekið einhvern tíma að selja húsið en ég held að staðsetningin muni hjálpa mikið til.

Núna erum við á fullu á netinu að leita að íbúð ... erum voðalega vandlát á staðsetningu, en við viljum helst vera í sama hverfinu upp á leikskólan svo og skólann .... svo er bara vonandi að bankinn vilji lána okkur, þurfum nefnilega að taka viðbótarlán líka þar sem við eigum ekki fyrir útborgun.  Ætluðum nefnilega ekki að fara í þennan pakka fyrr en eftir 2 ár þannig að....  en þetta hlítur að reddast:)

Svo fékk ég að vita í vikunni að ég fengi styrkinn frá Nýsköpunarsjóð vei :)  Var á fundi áðan niður á Matís að skipuleggja sumarið ... hrikalega hlakka ég til.  Fæ verkefni sem ég geri í sumar metið sem einingar upp í masternámið sem er bara snilld.  Svo eru launin miklu betri en ég þorði að vona8)  Þarf reyndar örugglega að fara eitthvað austur á Neskaupstað... Ragnhildur: ég fæ kannski að kíkja í kaffi :)

Svo eru næstu tvær vikur undirlagðar í próf ... þannig að ég verð að reyna að hætta að hugsa um þetta í bili ... svo ég geti einbeitt mér að prófunum. 

Þetta verður ekki lengra í bili, þarf að fara að fínpússa skýrsluna mína í Matvælaverkfræði 2 svo ég nái að skila henni fyrir próf.

Þangað til seinna

og munið að vera góð hvert við annað :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 12:36:51 / mga1

GLEÐILEGT SUMAR

já enn á ný er komið sumar .  Ég veit að þetta er gömul lumma en voðalega líður tíminn hratt ... finnst eins og haustið sé nýkomið og maður er varla búin að snúa sér við þá er aftur komið sumar :)  Ég reikna með því að þetta verði gott sumar þar sem vetur og sumar frusu saman ... en svo segir þjóðtrúin allavega :)  Fannst reyndar síðasta sumar bara gott, þó veit ég að það eru ekki allir sammála mér ... en ég var bara í fæðingarorlofi að dúlla mér með skvísunum mínum þannig að fyrir mér var sumarið gott ;)

Sumarið að koma þíðir að þessi önn er alveg að verða búin.  Var í mínu þriðja prófi í dag og á því bara þrjú eftir ... hálfnuð jei :)  en fer ekki í næsta fyrr en í byrjun maí þannig að ég ætla nýta tíman þangað til að reyna að klára þessar skýrslur sem ég á eftir.  Helgin verður nú frekar óspennandi hjá mér ... þarf að ljúka ritgerð og semja tvo fyrirlestra fyrir mánudaginn.  Ég er svo skrítin .. það er sama hvað ég held marga fyrirlestra þá er ég alltaf jafn stressuð .. líður eins og rollu á leið til slátrunar :S En svo þegar þeir eru yfirstaðnir skil ég ekkert í mér að vera að þessu stressi.

En allavega ... þá eru spennandi tímar framundan.  Eftir prófin byrja ég í nýju vinnunni :)  Fæ að vita um mánaðarmótin hvort ég fái styrkinn frá Nýsköpunarsjóð ... það væri nú bara snilld *krossa fingur* en þá gæti ég fengið það rannsóknarverkefni metið í skólanum .. væri ekki amalegt að gera skólaverkefni og fá borgað fyrir það 8)  Síðan er bara ein önn eftir og þá er ég komin með B.s. prófið ... en síðan taka reyndar við 2 ár í masterinn. 

Jæja ætla að fara að horfa á Nágranna (já ég veit en ég er forfallinn neighbours fan hehe) og fara síðan að vinda mér í ritgerðina og fyrirlestrana.

Hafið það úberdúber gott :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 01:27:02 / mga1

GLEÐILEGA PÁSKA

vildi bara óska ykkur gleðilegra páska og góðs páskeggjaáts :)  Er á leiðinni í bælið, þannig að ég ætla ekkert að röfla í kvöld.  Er reyndar að fara alltof seint að sofa ... gleymdi mér aðeins við lærdómin ... þannig að ég verð kannski pínu þreytt á morgun en ég harka það af mér, kom nefnilega mörgu í verk í kvöld ... verkefnunum aðeins að fækka, en samt nóg eftir.

Hafið það svoooona gott og farið verlega í átið :)

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 21:18:19 / mga1

Alveg að koma próf :(

... já ég er að farast úr stressi ... allt of stutt í próf og allt of mikið að gera :S

Var í Fóðurblöndunni í allan dag í vöruþróunarverkefni ... og er gjörsamlega búin á því.  Í fyrsta lagi þá er þetta fyrirtæki á 7 hæðum þannig að maður þurfti að hlaupa upp og niður til að taka sýni og mæla .. samt alveg ágætis líkamsrækt hehe.  Það versta var nú samt helv.. skítalyktin ... við erum að tala um það að ég angaði eins og belja í fjósi þegar ég kom heim :S  En fjörið er ekki búið... þarf að fara aftur á morgun.  Best bara að setja upp Pollyönnu grímuna og þá verður þetta allt miklu skemmtilegra ;)

Leigusalinn okkar er látin.  Þannig að nú höngum við á bláþræði hvort við höldum íbúðinni eða ekki ... börnin hennar ætla að taka ákvörðun eftir páska hvort húsið verður selt eða ekki .. sem ég vona svo innilega ekki ... fáum hvergi svona góðan díl eins og við erum með.  Ef svo fer getur verið að við förum fyrr í íbúðarkaup en áætlað var, þó að við höfum engan vegin efni á því ... fyrst ég er að rembast við að vera í skóla.  En það reddast, er það ekki?

Jæja þetta gengur ekki lengur, verð að fara henda mér í það að klára þessi verkefni sem hlaðast endalaust upp.

kv. Magga


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 22:31:57 / mga1

Bleble

Jæja, kominn tími á nokkrar línur?

Þessa dagana óska ég þess að sólarhringurinn væri aðeins lengri ... alveg hrikalega mikið að gera.  Er að drukkna í rannsóknum og verkefnum ... og svo eru prófin á bak við næsta horn :(  Kannski væri bara hægt að fá einn svona minime .. hehe ... væri það ekki ljúft.

Svo eru kosningar um helgina ... Álver eða ekki álver ?  Þegar stórt er spurt er fátt um svör ... allavega er ég ekki búin að gera það upp við mig :S

Hef alveg hrikalega lítið að segja ... heilinn er alveg orðin þurrausa ... væri ekki fínt ef maður gæti tappað af honum annað slagið til þess að annað komist fyrir hehe eða bara kaupa auka heila (svona eins og flakkara) það væri bara snilld :)

Jæja ætla að fara að ganga frá skólabókunum ... nenni ekki meiru í kvöld ... og fara að horfa á Medium

Hafið það gott og munið að vera góð hvert við annað :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 20:59:53 / mga1

What what in the butt ........

OMG hahahahaha ... eru þið búin að sjá þetta

http://www.youtube.com/watch?v=fbGkxcY7YFU


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 23:27:40 / mga1

Veikindi ...

jahá ... í síðustu færslu sagði ég að heilsan væri öll að skána ... en raunin varð önnur.  Á sunnudagskvöldið byrjað allt upp á nýtt og af helmingi meiri krafti :(  Drattaðist nú samt í skólan á mánudagsmorgninum en var fljót heim eftir fyrsta tíman upp í rúm.  Var fyrst ágætlega góð í dag til þess að mæta aftur í skólan .... ömurlegasta flensa sem ég hef fengið.  Ætla rétt að vona að þetta sé búið núna ... má sko ekki við því að vera meira veik.  Erlu Ósk fannst nú soldið skrítið að mamma sín skyldi vera veik (ég meina ég er aldrei veik).  Hún passaði nú vel upp á mömmu sína og passaði að hún mæti nú ekki fara út :)  Svo hélt hún því fram að hún væri komin með hálsbólgu líka ... "mamma ég er með hálsbólgu, finndu bara lyktina"  hehe bara kjút :)

Er búin að fá próftöfluna og kemur hún bara alveg ágætlega út og skv. henni tek ég síðasta prófið 11. maí sem er bara fínt... og þá tekur vinna við.  Verður svolítið skrítið að fara að vinna þar sem það er svo langt síðan ég var að vinna síðast ... var nefnilega í fæðingarorlofið síðasta sumar.  En það verður bara fínt og hlakka soldið til :)

Ætla að fara að halda áfram að læra ... meira seinna.

p.s. hrósið fær Ester vinkona ... hún stendur sig ekkert smá vel á danska :)

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.02.2007 13:38:10 / mga1

Helgin á enda...

jamm nú er helgin að verða búin.  Get nú ekki sagt að hún hafi verið neitt spés... náði mér í einhverja flensudrullu :( hef sko engan tíma fyrir svoleiðis rugl.  Fór ýkt snemma að sofa í gær og náði að sofa hana að mestu úr mér .. eða við Erla Ósk því hún fékk smá vott af henni í gærkveldi.  En þetta er allt að koma ... erum mun hressari í dag :)

Allt brjálað að gera í skólanum ... en margt mjög spennandi.  Er að fara á fund í vikunni að skipuleggja mastersnámið :) ... jamm búin að ráðstafa næstu 2 árum eftir útskrift ... hlakka ekkert smá til að fara að takast á við ýkt spennandi verkefni :)  verð einnig að vinna hjá þeim auk mastersverkefnisins þannig að þá slepp ég við að taka námslán sem er bara snilld.

Fór í síðustu viku í heimsókn til SS á Selfossi og fékk að sjá nauti slátrað.  Var búin að kvíða því alveg þvílíkt... komin með í magan og alles ... en þetta var langt frá því að vera eins ógeðslegt og ég hafði ímyndað mér ... allavega er ekki ennþá orðin grænmetisæta ;)

Jæja ætla að reyna að taka aðeins til ... þar sem bróðurpartur af helginni hefur farið í að vorkenna sjálfri sér hehe...

... þar til seinna ... og hafið það úberdúber gott :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Við erum að fara að flytja :)
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1684 dögum
..á hvað ertu að hlutsta..